Lyklasmíði fyrir MUL-T-LOCK®
Við smíðum aukalykla fyrir MUL-T-LOCK® lyklakerfi og læsingasylindra, fljótt og nákvæmlega og alltaf með öryggið í fyrirrúmi. Hver lykill er tilbúinn á 2–3 mínútum.
Aukalyklar
Fjölbýlishús
Kortakerfi

Aukalyklar fyrir íbúðareigendur
Lykill á aldrei að lenda í röngum höndum. Þess vegna smíðum við eingöngu lykla fyrir þá sem hafa til þess leyfi.
Eigendur íbúða í fjölbýlishúsum með MUL-T-LOCK® kerfi geta komið til okkar og fengið aukalykla að íbúðinni. Oftast gengur sami lykill að sameign og geymslu. Við staðfestum eignarhald í Fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands og þú framvísar skilríkjum með mynd. Svo smíðum við þann fjölda lykla sem þú þarft.

Svona gengur þetta fyrir sig
1. Komdu með skilríki
Ökuskírteini eða vegabréf með mynd.
2. Við staðfestum eignarhald
Við flettum upp skráðum eiganda í Fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands.
3. Gengið frá greiðslu
Lyklar eru ekki smíðaðir eftir símapöntun eða fyrirfram.
4. Lykillinn er tilbúinn
Það tekur aðeins 2–3 mínútur að smíða hvern lykil.
Algengar spurningar
Eyðublöð
Umboð vegna lyklasmíði
Tiltekinn fjöldi lykla
Tímabundið
Öryggisblað vegna lyklasmíði
Ótakmarkaður fjöldi
Þar til afturkallað

Tölvustýrð nákvæmni
Við smíðum lykla í tölvustýrðri lyklaskurðarvél af nýjustu gerð frá MUL-T-LOCK®. Nákvæmnin tryggir að lykill og læsing vinni saman mjúklega ár eftir ár.
Í höfuðlyklakerfum er öll lyklasmíði skráð, svo alltaf er hægt að sjá hve margir lyklar eru í umferð.