Lýsing
15 metra slönguhjól með öllum nauðsynlegustu áhöldum
- Hentugt sett með öllum helstu hlutum til vökvunar á litlum garði eða til þvotta á bíl og búnaði.
- Nær allt að 15 metra
- Endingargóð 9 mm (3/8″) slanga
- Létt og meðfærilegt sett
- Auðvelt að draga slöngu af hjólinu og auðvelt að rúlla upp aftur
- Hjólið leggst lárétt á stétt eða gras
- Nauðsynlegustu fylgihlutir í handhægu geymsluhólfi á hjólinu
- Passar með öðrum hlutum ír vökvunarlínu Fiskars®
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Þyngd | Lengd slöngu | Sverleiki slöngu | Fj. í pk. |
---|---|---|---|---|---|---|
ZL-V1020436 | Slönguhjól 15 m – 9mm (3/8″) | 6411501510006 | 3,5 kg. | 15 m | 9 mm – 3/8″ | 1 |
Vökvun gerð einföld
Minnsta slönguhjólið í vörulínu Fiskars® er með öllu því sem þú þarft til að vökva lítinn garð, spúla sólpalla og stéttar. Í geymsluhólfi hjólsins er að finna stillanlegan úðastút, kranatengi fyrir þrjá sverleika af krönum og statíf fyrir úðastútinn. Allt sem þarf til að byrja. Til viðbótar þá er hjólið létt og meðfærilegt, ásamt því að það er auðvelt að draga slönguna út af því og að rúlla henni inn aftur. Hjólið er hannað bæði með notagildi og útlit í huga. Möguleiki er að fá veggfestingu til að koma hjólinu fyrir á vegg á einfaldan hátt án þess að rýra notkunarmöguleika þess.