STROXX snjalllæsingar

Rafrænar aðgangsstýringar fyrir hurðir, hengilása, skápa og lyklabox, stýrt með XLOCK appinu. Þú ákveður hver kemst inn, hvenær og hvernig.

Bluetooth


PIN-kóði


Kort og flaga


Fingrafar


XLOCK – hugbúnaður sem þú getur treyst

XLOCK hugbúnaðurinn sem stýrir STROXX lausnunum er hannaður í Austurríki og hýstur í Sviss. Margar sambærilegar lausnir eru hýstar utan Evrópu, en hjá XLOCK tryggja evrópsk persónuverndarlög réttindi notenda.

Í appinu stillir þú aðganga og aðgangstíma. Það er frítt og án áskriftargjalda, svo enginn falinn kostnaður bætist við síðar. Allar opnanir og allar tilraunir til opnunar eru skráðar, svo þú getur alltaf flett þeim upp.

Austurríki

Hugbúnaðurinn er hannaður í Austurríki

Sviss

Gögnin eru hýst í Sviss, innan evrópskrar persónuverndar

0 kr.

Appið er frítt og án áskriftargjalda

STROXX ST-2 snjallhúnasett EURO svart

Snjallhúnasett fyrir hurðir

Snjallhúnasettin passa á hurðir með skandinavísku (ASSA) eða evrópsku (EURO/DIN) láshúsi og virka líka með þriggja punkta læsingum. Þau fást svört eða með burstaðri stáláferð og koma auðveldlega í stað gömlu húnanna.

Innri húnninn virkar alltaf, svo alltaf er hægt að ganga út. Ytri húnninn virkar aðeins þegar hurðin er ólæst. Þú velur hvernig hurðin hagar sér:

  1. Opin í stutta stund, frá 5 sekúndum, og læsist svo sjálfkrafa.
  2. Opin þar til henni er læst aftur með appi eða talnaborði.
  3. Tímastýrð: opnast þegar fyrsti starfsmaður mætir og læsist sjálfkrafa á tilteknum tíma, t.d. kl. 17. Hún opnast því aldrei sjálfkrafa á frídögum.

Margar leiðir til að opna

App og Bluetooth

Opnaðu með XLOCK appinu í símanum. Með tengipunkti opnar þú hvaðan sem er.

Fjaropnun

Kort og aðgangsflaga

Leggðu kort eða flögu (Mifare RFID) upp að lesaranum.

RFID

PIN-kóði

Sláðu inn kóða á talnaborðinu, t.d. á hurðahúnasettinu.

Talnaborð

Fingrafar

Hurðahúnasettin og fleiri læsingar opnast með fingrafari.

Lífkenni

Neyðarlykill

Mekanískur lykill ef rafhlaðan tæmist. Rafhlaða í hurðahúnasetti endist um eitt ár við venjulega notkun.

Varaleið

Viltu vita meira?
Við veitum ráðgjöf um STROXX lausnir og bjóðum einnig upp á uppsetningu.
STROXX tengipunktur XLOCK G3P

Tengipunktar – stýrðu læsingunum hvaðan sem er

Með tengipunkti (gateway) tengjast læsingarnar internetinu, svo þú getur opnað, stillt og fylgst með þeim hvar sem þú ert. Tengipunkturinn tengist netkerfi hússins og talar við læsingarnar um Bluetooth. Einn tengipunktur stýrir mörgum læsingum innan drægni.

  1. Einfaldur tengipunktur: tengist um wifi og fær straum um USB.
  2. Wifi og ethernet: straumur um USB-C eða PoE.
  3. 4G tengipunktur: fyrir staði án netkerfis. Þarf SIM-kort og áskrift.

STROXX ST

Fleiri snjalllausnir

STROXX ST línan er í örri þróun og nýjungar bætast stöðugt við.

  • Lófa- og andlitsskanni

    Lófa- og andlitsskanni

    Opnar með lófafari, andliti, korti eða appi. Geymir 1.000 kort, 100 andlit og 200 lófaför. IP67.

  • ST-10 oval sylinder (ASSA)

    ST-10 oval sylinder (ASSA)

    Fyrir skandinavísk láshús. Snerill sem virkar þegar aflæst er. IP68.

  • ST-14 EURO hálfsylinder

    ST-14 EURO hálfsylinder

    40,5 mm. Fyrir hengilása, bílskúrshurðir og hlið. IP68.

  • ST-12 EURO sylinder

    ST-12 EURO sylinder

    32,5 + 32,5 mm. Snerill að utan og innan. IP68.

  • ST-13 hengilás

    ST-13 hengilás

    Úr messing, 50 × 55,4 × 38,6 mm. IP68.

  • Rafræn skápalæsing

    Rafræn skápalæsing

    Fyrir skápa og skúffur. Rafhlöður endast allt að 10.000 opnanir.

  • Rafrænt lyklabox

    Rafrænt lyklabox

    App, fingrafar, PIN, kort eða flaga. Þolir −20 °C til 70 °C. IP65.

  • Lesari og skrifari

    Lesari og skrifari

    Les og skrifar aðgangskort og flögur í gegnum XLOCK vefinn.