Lýsing
21 cm skæri fyrir almenna notkun – framleidd úr endurunnum efnum
- Góð skæri fyrir almenna heimilisnotkun
- Sjálfbær framleiðsla – unnin úr endurunnum efnum (78%) og sellulósatrefjum (12%)
- Eru 100% endurvinnanleg
Endurunnu skæri Fiskars eru hönnuð og framleidd með sjálfbærni í huga og til að heimilin hafi möguleika á að kaupa umhverfisvænni skæri en almennt bjóðast.
Eins og aðrar vörur frá Fiskars, þá eru skærin hönnuð til að endast lengi sem er í leiðinni umhverfisvænna. Handföng skæranna eru mjög notendavæn og þægileg, skærin sjálf eru úr endingargóðu ryðfríu stáli. Skærin eru framleidd í Finnlandi og hver skæri prófuð áður en þau fara úr verksmiðju til að tryggja gæði. Handföng eru hönnuð fyrir hægrihandar notkun. Pakkning sem skærin koma í er 100% endurvinnanleg.
Af því skærin eru unnin úr endurvinnanlegum efnum og nánast án viðbættra efna þá getur verið litamunur á milli para. Ekki er hægt að tryggja sama lit, og má búast við að handföng séu í grænleitum eða yfir í brúnleitan lit og gefur þá hverjum skærum sinn eigin karakter. Ljósbrúnir deplar á handföngum koma frá endurvinnanlegum sellulósatrefjum.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Lengd | Fj. í pk. |
---|---|---|---|---|
ZL-1058094 | Skæri universal 21cm endurunnin | 6424002013280 | 21 cm | 6 |